Kelduhverfi

Þetta er vefur Kelduhverfis

Fréttir

Til Svínadals í Jökulsárgljúfrum

Á næstunni - föstudagur 9.júl.10 10:44 - Lestrar 354
Þriðjudaginn 13. júlí verður  fluttur áhugaverður útvarpsþáttur á Rás 1 sem nefnist  "Til Svínadals í Jökulsárgljúfrum". Umsjónarmaður er Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir á Víkingavatni.

Af vef RUV.is

"Til Svínadals í Jökulsárgljúfrum.

Flutt: þriðjudagur 13. júlí 2010 kl. 16.05.

Í þættinum fer umsjónarmaður með hlustendur í gönguferð um land eyðibýlisins Svínadals í Jökulsárgljúfrum. Farið er um svæði með áhugaverðum náttúru- og menningarminjum þar sem náttúra og saga eru samofin á einhvern einstakan hátt. Í ferðinni segir hann ykkur frá lífi og starfi fólks, gleði þess og sorgum á þessum einstaka stað á fyrri hluta 20. aldar. Umsjónarmanni til aðstoðar er Þorkell Björnsson. Umsjón: Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir "

Sunnudaginn 18.júlí n.k fer Stella í gönguferð á Svínadal á vegum Vatnajökulsþjóðgarðs. Lagt verður af stað frá bílastæðinu við Hljóðakletta kl. 11:00. Allir velkomnir.


Til baka

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning